þriðjudagur, nóvember 14, 2006
Datt niður í eitthvað dýpi þessa vikuna. Bara verið voða þung eitthvað, andlega og þar með líkamlega. Ekkert hugsað um mataræðið og ekkert hreyft mig. Skil þetta bara ekki alveg því ég er alls ekki vön að detta í einhvern svona dapurleika. Hef svo sem ekki stigið á vigtina, en hef grun um að hér gildi "easy go, easy come". En þá er bara að reyna að snúa því við aftur, ekki satt?
fimmtudagur, nóvember 02, 2006
Vigtunardagur
Og það fuku 3 kg þessa vikuna. Er ekki ósátt við það ;) Veit alveg að það fer alltaf mest fyrst, en ég finn nú alveg og sé mun á mér sko ;)
miðvikudagur, nóvember 01, 2006
Vinna vinna :S
Já, maður er bara alltaf að vinna. Átti nú að eiga frí í dag, en lét plata mig á aukavakt. Ætla nú samt fyrst í ræktina og svo fer ég á vaktina kl. 15:30. Jamm, maður er víst að reyna að krækja sér í smá pening.
En ég er búin að vera svakalega dugleg alla þessa viku. Þar sem ég byrjaði í þessu s.l. fimmtudag ætla ég að stíga á vigtina á morgun og sjá hvort ekki sé eitthvað farið af mér ;)
En ég er búin að vera svakalega dugleg alla þessa viku. Þar sem ég byrjaði í þessu s.l. fimmtudag ætla ég að stíga á vigtina á morgun og sjá hvort ekki sé eitthvað farið af mér ;)