Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Þung

Datt niður í eitthvað dýpi þessa vikuna. Bara verið voða þung eitthvað, andlega og þar með líkamlega. Ekkert hugsað um mataræðið og ekkert hreyft mig. Skil þetta bara ekki alveg því ég er alls ekki vön að detta í einhvern svona dapurleika. Hef svo sem ekki stigið á vigtina, en hef grun um að hér gildi "easy go, easy come". En þá er bara að reyna að snúa því við aftur, ekki satt?