Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Vinna vinna :S

Já, maður er bara alltaf að vinna. Átti nú að eiga frí í dag, en lét plata mig á aukavakt. Ætla nú samt fyrst í ræktina og svo fer ég á vaktina kl. 15:30. Jamm, maður er víst að reyna að krækja sér í smá pening.

En ég er búin að vera svakalega dugleg alla þessa viku. Þar sem ég byrjaði í þessu s.l. fimmtudag ætla ég að stíga á vigtina á morgun og sjá hvort ekki sé eitthvað farið af mér ;)