föstudagur, maí 19, 2006
Þreytt, þreytt, þreytt! Ekki verið nógu dugleg undanfarnar tvær vikur en þó alltaf eitthvað að reyna. Aðallega ræktin sem hefur fengið að sitja á hakanum. En er að fara á eftir.
föstudagur, maí 05, 2006
Líður svoooo vel ;)
Já, mér líður bara svo ofsalega vel þessa dagana. Hamingjusöm og létt í skapi, mætti vera léttari í kílóum talið, en það er allt á réttri leið ;) Allar stórar áhyggjur eru farnar og það er bara gaman að vera til ;)
Ég ákvað að skella mér í svona Heilsueftirlit í Laugum, byrjaði í dag. Þá hitti ég þjálfara sem fer yfir mælingarnar með mér, markmið og býr til prógramm í tækjunum... já og bara heldur svolítið utan um þetta. Ég mæti svo reglulega í vigtun og mælingar. Hefði getað gargað þegar ég var mæld í morgun, fituprósentan aftur orðin allt of há og ummálsmælingarnar ömurlegar. Það er svo svekkjandi að sjá þetta svona þegar maður hefur verið í flottu formi. En þá er bara að komast þangað aftur. Ég er í góðum gír og ætla að nýta mér hann. Reyndar verður djammað um helgina, afmælisveisla og fleira, en ég er samt svo bjartsýn. Ætla ekkert að missa mig út í neina bölvaða vitleysu ;)
Kíkið svo á nýjasta átaksbloggarann, Fitubollan, og endilega peppið hana upp.
Jæja, farin að taka til og dundast fyrir þetta partý í kvöld. Light bjór á boðstólnum fyrir mig ;)

fimmtudagur, maí 04, 2006
Dugleg ;)
Já, ég er bara búin að vera nokkuð dugleg í átakinu, þó ég hafi ekki verið eins dugleg að blogga. Fór í ræktina í gær og ætla að drífa mig á eftir líka. Ég er líka búin að standa mig vel í mataræðinu, enda eru um 2 kg farin síðan ég byrjaði núna fyrir alvöru ;) Þannig að þetta virðist allt vera á réttri leið. Ég finn líka að ég er í góðum gír. Í gærkvöldi í vinnunni ákvað einhver (eins og svo oft áður) að kaupa fullt af nammi og setja í skálar hér og þar, og ég bara fékk mér ekki neitt :D Og mér fannst heldur EKKERT erfitt að standast þetta ;) Þegar ég er í svona gír þá er líka best að nýta tímabilið sem allra best, því ég veit það koma svo tímabil þar sem erfiðara er að standa freistingarnar.
Kærastinn gaf mér línuskauta í fyrradag ;D Nú verð ég sko að komast til að prófa þá, næst þegar ég er í fríi. Hlakka rosa til að læra á þetta, held að maður geti alveg brennt slatta við að línuskautast ;)
Í dag er planið að skella sér í ræktina, síðan fer ég í lunch með vinkonum mínum og ég ætla bara að taka með mér nesti, og svo er það kvöldvakt.
Skrifa meira síðar ;)