Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

sunnudagur, júlí 18, 2004

Ein vika í 80 kg - vigtun og mæling í dag

Sem sagt vigtun og mæling í dag. Ætlaði að vera orðin 81 kíló slétt, en vigtin var ekki alveg sammála mér og sýndi 81,3. Verð að viðurkenna að ég er pínulítið svekkt, en þetta er nú samt ekkert langt frá. Sentimetrarnir standa flestir í stað, sést samt smá munur á mittinu og mjöðmunum.
 
Brjóst:............102 cm (102)
Mitti:...............76 cm (77)
Magi...............99 cm (99)
Mjaðmir:..........98 cm (99)
Upphandleggur:.32 cm (32)
Læri:................61 cm (61)
Kálfi:................39 cm (39)
 
Nú hef ég bara viku til að komast í 80 kg. Það þýðir að ég þarf að missa 1,3 kg næstu viku :S Ég geri mitt besta ;) Fór ekkert í leikfimi í síðustu viku nema þennan eina dag sem ég var alveg ónýt. Ég ætla ekki að fara í dag, en ég ætla svo sannarlega að fara á morgun. Þessi síðast vika verður tekin með trompi :D
 
 

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home