Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

laugardagur, júlí 10, 2004

15 dagar í 80 kg og vigtunardagur á morgun

Jájá, mér gengur bara ágætlega held ég. Næturvakt aftur í nótt. Annars er ég alveg brjáluð núna, það var nefninlega klippt af bílnum okkar áðan. Forsendurnar voru þær að það væri ekki búið að borga umskráningargjaldið, en það er bara helvítis kjaftæði, því við borguðum það í september í fyrra. Ég er bara svo fokvond að þeir geri þetta á laugardegi þegar allar skrifstofur eru lokaðar og ekkert hægt að hringja og láta leiðrétta þetta. Þannig að við erum bara bíllaus og ég er öskuill. Alveg býst ég líka við einhverju bölvuðu veseni að fá þetta leiðrétt, í þessu helvítis býrókratíulandi hér. Það er það eina sem ég ÞOLI ekki við Noreg, þetta pappírsflóð og vesen á öllu, skriffinska og engin liðlegheit.

Jæja, fokk, ég er farin í vinnuna... LABBANDI!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home