Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

föstudagur, júlí 02, 2004

Allt úr skorðum

Ég var búin að plana þennan dag bæði með tilliti til mataræðis og leikfimi, en svo fór allt úr skorðum. Málið er að þetta var síðasti dagurinn hans Hjalta hjá yndislegu heimafóstrunni hans svo hún bauð okkur í kaffi þegar við sóttum drenginn. Þar var boðið upp á kökur og kaffi og ég stóðst ekki mátið og fékk mér eina litla súkkulaðikökusneið og aðra af einhverskonar sandköku. Svo sátum við þarna auðvitað í einhvern tíma og síðan ætlaði ég að drífa mig í leikfimi þegar ég fattaði að þeir eru búnir að breyta i sumaropnun hjá sér. Loka sem sagt klukkan 18 í stað 20, svo ég komst ekkert í leikfimi heldur. En það verður bara að hafa það. Verst er að ég kemst ekki í leikfimi á morgun heldur eins og ég ætlaði, því Bjöggi er búinn að lofa sér til vinar síns að hjálpa honum eitthvað og þá fer hann á bílnum. En það þýðir að ég fer ekki í leikfimi. Það er bara opið til 16 á morgun og ég veit alveg að ég nenni ekki að fara að hjóla upp í líkamsræktarstöð þegar ég er ekki búin að sofa almennilega eftir næturvaktina. Reyni að fara á sunnudaginn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home