Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

Svolítið svekkt

Já, ég veit að ég á ekkert að vera að spá í vigtinni svona daglega, en samt get ég ekki að því gert að vera svolítið svekkt. Hún sýndi 70,2 í gær og 70,3 í dag. Þó ég hafi ekki staðið mig eins og ég ætlaði þá var ég samt ekki að borða það mikið að það ætti að þyngja mig, ásamt því að ég hreyfði mig vel báða dagana. Merkilegt hvernig þessi vigt getur hagað sér... eða réttara sagt líkaminn. Ég veit alveg að það er ekkert að marka þetta og að talan á morgun... eða á föstudaginn gæti verið allt, allt önnur. En ég þurfti bara að blása smá, er pínu niðurdregin yfir þessu. Samt ekkert sem þið þurfið að hafa áhyggjur af stelpur mínar, það er bara svo gott að fá útrás hér ;). En ég ætla að vera voða dugleg í dag í mataræðinu. Fer á kvöldvakt á eftir og ætla að passa að taka með mér nesti ;). Skrifa svo meira í kvöld þegar ég kem heim.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home