Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Sukk- og djammþörf

Ég finn það að ég þarf að fara að fá einn almennilegan djamm-sukkdag. Ekkert eitthvað eitt snickers yfir sjónvarpinu. Bara góðan dag með krembollum, góðum mat og meðlæti, eftirrétti, fullt af bjór og öllum þessum pakka. Þessi þörf er mjög sterk í mér núna og ég held að ég springi bara gjörsamlega ef ég leyfi mér ekki bráðum svona dag. Vildi óska að mér tækist að redda barnapíu á laugardaginn og draga bara kallinn út á djammið. Sjáum hvað setur ;)