Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

fimmtudagur, febrúar 17, 2005

Léttir réttir

Hey stelpur. Við eigum orðið svo mikið magn af allskonar uppskriftum í pokahorninu,. Hvernig væri að við söfnuðum þeim öllum á einn stað þar sem við eigum auðveldara með að finna þær? Ég gerði MSN síðu sem ég kalla Léttir réttir og við getum þá skráð okkur þar og bara sett inn okkar uppskriftir sjálfar. Ég vona að þið takið vel í þetta, því það væri frábært að eiga svona uppskriftabanka með góðum og léttum uppskriftum :D. Ég er svona rétt að byrja að setja inn uppskriftirnar mínar og svo bætast bara við jafnóðum ;). Allavegana finnst mér þetta alveg brilliant hugmynd :D.