Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

laugardagur, febrúar 26, 2005

;´(

Það verður ekkert úr djammferðinni okkar *grát*. Kallinn er með svo slæmt mígrenikast að hann hefur ekkert út að gera. Ég er svo ógeðslega svekkt að ég gæti bara grenjað. Og af þessum vinkonum sem ég á hér þá er engin sem getur komið með mér út, annað hvort eru þær veikar eða með barn á brjósti, eða að gera eitthvað annað. Ég sem var búin að hlakka svo til að komast út á djammið. Svo finnst mér ég vera búin að skemma daginn til einskis, búin að fá mér fullt af gúmolaði. Ætlaði bara að setjast niður og vera í fýlu og grenja í allt kvöld, en svo bauð ein vinkona mín mér í heimsókn þó svo að hún komist ekki út sjálf. Þannig að ég ætla að sitja og kjafta við hana og fá mér öllara og hafa það næs. Allavegana aðeins skárra :/