Svindl dag eftir dag
Já sorry Bryndís, en það var ógurlegt svindl í dag líka. Ég hafði engan tíma að útbúa neitt spes fyrir mig í afmælispartýinu svo ég datt bara í kökur og pizzu og sælgæti. Ekki léttist ég mikið þessa vikuna, er örugglega orðin þyngri :S Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér í kringum þetta, vinna og reyna að undirbúa afmæli. Ég var svo úrvinda eftir þetta allt saman í gær að ég steinrotaðist í hægindastólnum klukkan 22:30, skreið svo upp í rúm klukkan 5:30 og hélt áfram að sofa og svaf til klukkan 14. Ég hefði örugglega getað sofið lengur. En svakalega var nú samt gott að fá að sofa svona.
En jæja, dagurinn í dag lítur betur út. Byrjaði hann á Lindbergbrauði og léttjógúrt og svo ætla ég að drífa mig í ræktina eftir smá stund ;)
En jæja, dagurinn í dag lítur betur út. Byrjaði hann á Lindbergbrauði og léttjógúrt og svo ætla ég að drífa mig í ræktina eftir smá stund ;)
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home