Törnin búin
Jæja, ágætt að vera búin á næturvöktunum. Ég ákvað reyndar að fara ekki í ræktina í kvöld, ákvað bara að eyða tímanum eftir að ég var búin að sofa með krökkunum mínum. Undanfarin 4 kvöld hefur það verið Bjöggi sem hefur komið þeim í bólið þar sem ég hef þurft að fara á næturvaktir, svo mér fannst bara réttara að sleppa því að fara í ræktina í þetta sinn og vera smá mamma ;) Var líka að gera afmælisboðskort fyrir Elísu, en hún verður 10 ára á föstudaginn og ætlar að hafa stelpupartý ;)
Ég er ekki búin að klára að skrifa niður matarlistann í dag og þar með ekki reikna út kaloríur eða kolvetni, set það inn seinna ;)
Ég er ekki búin að klára að skrifa niður matarlistann í dag og þar með ekki reikna út kaloríur eða kolvetni, set það inn seinna ;)
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home