Næturvaktir framundan
Jámm, er að fara á næturvakt í nótt, þá fyrstu af fjórum í þessari lotu. Mataræðið verður alltaf svolítið skrýtið þegar ég er á næturvöktunum, enda furðulegir matmálstímar. Hef ekki tíma til að skrifa inn matseðilinn núna, en hingað til eru hitaeiningarnar orðnar um 1290 og kolvetnagrömmin 43. En ég veit alveg að ég á eftir að borða eitthvað í nótt, meika sko ekki heila næturvakt án þess að borða neitt ;) Svona er þetta bara og mun vera.
En ég fór í ræktina í dag og tók vel á. Keypti mér meira að segja ný leikfimiföt, í stærð M, algjör gella hehe. Þau sitja alveg þétt á mér, en þannig vil ég líka hafa það, þá sé ég betur breytingarnar á líkamanum ;) Þetta mp3 tæki er áfram hin mesta snilld sem ég hef komist í, allavegana í sambandi við úthald og skemmtun við að orbitrekka ;D (verð örugglega farin að syngja með upphátt einhverntíman).
Sé ykkur á morgun dúllurnar mínar, verð að drífa mig í vinnuna ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home