Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

fimmtudagur, janúar 13, 2005

Humm :S

Ekkert sérstaklega góður dagur í dag. Bara mikið að gera og ég planaði ekkert matseðilinn. Búin að vera að stússast á fullu fyrripart dags og svo kvöldvakt í vinnunni. Borðaði svo sem enga óhollustu, bara of mikið af öllu. Hef heldur ekkert skrifað niður mataræðið, veit bara að það var of mikið. Á morgun er annar eins dagur, er á morgunvakt og hef svo tvo tíma til að undirbúa afmæli. Ætla að gera pizzu og hugsa að ég skelli svo bara í skúffuköku, langeinfaldast. Hef ekki einu sinni haft tíma til að fara í ræktina, en á laugardaginn get ég druslast þangað aftur. Jájá, reyni samt að vera dugleg á morgun ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home