Föstudagur og frí ;)
Mér finnst föstudagar svo æðislegir, þegar ég á fríhelgi ;) Ég ætlaði nú eiginlega í pallatíma í dag en ruglaði tímasetningunni og hélt að tíminn byrjaði kl. 18:00, en hann byrjaði kl. 16:30. Ég ákvað svo bara að sleppa þessu núna, enda var nóg að gera hjá mér að versla inn fyrir afmælið hennar Örnu á sunnudaginn. Kannski leggst á stofugólfið á eftir og skelli Pilates disknum í DVD tækið í staðin... þegar krakkarnir eru sofnaðir ;) Verð nú að prófa þetta sko ;D
En matseðill dagsins er svona:
Morgunmatur: 2 sneiðar Lindbergbrauð með L&L, roastbeef og eggjum, 125 mL léttjógúrt með jarðarberjum.
Hádegismatur: Salat með furuhnetum, ólívum og skinku, smá dressing.
Miðdegisverður: Brokkolí-ostasúpa með skinkubitum, 1 sneið Lindbergbrauð með L&L, skinku og léttosti.
Kvöldsnarl: Skyr með Crémefine og strásætu ásamt 1/2 niðurskornu epli.
Millibiti: 2 Atkinssúkkulaði.
Samtals gerir þetta u.þ.b. 1350 kkal. og 60 grömm kolvetni.
Jæja, ég ætla að sinna krökkunum aðeins, kíki bloggrúntinn seinna í kvöld ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home