Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

sunnudagur, janúar 16, 2005

Þetta gengur ekki lengur

Nei stelpur, þetta gengur ekki lengur að vera í stanslausu sukki. Stalst í restirnar af afmæliskökunni í gærkvöldi. Nú bara verður tekið á þessu almennilega. Vigtin var ekkert sérstaklega góð við mig í morgun, sýndi 75,1 kg, en það er bara svipað og ég var síðast. Hundfúlt eiginlega því ég var búin að sjá töluvert lægri tölu í vikunni. En það er nú ekki við öðru að búast þegar maður lifir á pizzu, kökum og sælgæti. Nú verður sko bara hollusta í dag. Kem með matarskýrsluna í kvöld.

Best að kíkja á ykkur skvísur ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home