Gengur svo vel :D
Mér finnst þetta bara ganga svo rosalega vel núna. Mataræðið allt í góðu skipulagi og ég hef enga sérstaka þörf í neitt annað. Búin að vera svaka dugleg í ræktinni og er bara hæstánægð með mig. Fór reyndar ekki í ræktina í dag, enda svo sem alveg óþarfi að fara á hverjum einasta degi. Hins vegar fór ég með krakkana í friðargöngu áðan með skólanum hennar Elísu, og það var aleg dágott labb. Það er víst dagur sameinuðu þjóðanna skilst mér. Svo ég er búin að fá smá hreyfingu í dag.
Svolítið skondið hvernig það koma svona tímabil þar sem manni gengur svaka vel, er svo jákvæður og finnst þetta ekkert mál. Svo inn á milli koma tímabil þar sem ég varla nenni þessu, er í engu stuði, alltaf að svindla smá og stend mig alls ekki vel. En eins og ég er alltaf að segja, málið er að gefast samt ekki upp. Núna er ég t.d. í svona góðum gír og þá er líka best að nýta það vel ;)
En já, dagurinn er svona:
Morgunmatur: Egg og beikon.
Hádegismatur: 2 sneiðar Lindbergbrauð, önnur með léttsultu og osti, hin með L&L, skinku og eggjum.
Miðdegisverður: Nautstrimlar og grænmeti steikt á pönnu.
Kvöldsnarl: Kefir með strásætu. 1 sneið Lindbergbrauð með léttsultu og osti.
Millibiti: 1 pk Läkerol cactus og 1 pk Läkerol salvi.
Samtals er þetta um 1220 kkal. og 34 grömm kolvetni.
Var á námskeiði í dag, mjög áhugavert. Var fjallað um heimaöndunarvélar og þá sjúklingahópa sem kemur til greina að fái slíka meðferð. Á morgun er svo venjulegr vinnudagur og svo er maður bara kominn í helgarfrí, æði ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home