Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

föstudagur, október 15, 2004

Næturvaktir

Já, enn og aftur eru það næturvaktir hjá mér. Ætla nú samt að reyna að vera voða dugleg í mataræðinu og ekki láta allt fara í rugl. Tók með mér Lindbergbrauð og grænmeti í gær til að narta í, og það gekk bara mjög vel. Ætla bara að gera það sama í nótt, þ.e. taka með mér nesti. Annars fór ég ekki í ræktina í dag. Svaf auðvitað í allan dag eftir næturvaktina og svo þurfti ég að fara að kaupa regngalla á elstu dótturin og nesti, því hún er að fara í skátaferðalag á morgun (gistir eina nótt). Ég þarf svo að pakka niður fyrir hana og finna svefnpokann og svona, þannig að ræktin varð að bíða núna. Ætla bara að fara á morgun, en þá er eitthvað afmæli hjá stöðinni og einhver smá hátíð hjá þeim. T.d. er krökkunum sem eru í pössuninni boðið upp á ís ;)

Jæja, best að fara að gera eitthvað af viti ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home