Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

föstudagur, október 08, 2004

Pizzudagur ;)

Þetta er nú meiri notalegheitadagurinn. Ákvað að elda mér low carb pizzu í kvöld og spara kaloríur og kolvetni dagsins þangað til. Fékk mér bara próteinstöng í morgunmat og svo lagði ég mig bara og svaf í allan dag. Letinginn sko. Borðaði því engan hádegismat. Skrapp svo í ræktina þegar ég var búin að sækja krakkana á leikskólann (já, fór loksins í ræktina) og eldaði síðan pizzuna þegar ég kom heim, venjulega pizzu fyrir hina ;) Ætla svo að fá mér eitthvað gúmolaði í kvöld, er ekki búin að ákveða hvað, en ég á m.a. low carb súkkulaði og Läkerol. Ætla ekki að skrifa máltíðirnar, enda voru þær varla neinar, haha, bara pizza núna áðan ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home