Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

laugardagur, október 02, 2004

Weirdo dagur

Borðaði ekki neitt fyrr en um 16:30. Þá fór ég í bíó með elstu stelpunni minni og fékk mér eitt lítið dökkt hnetusúkkulaðistykki og 1 pakka Läkerol cactus. Svo borðaði ég kjúkling og grænmeti í kvöldmat og var svo að narta í smá kolvetnansnautt súkkulaði. Glæsilegur dagur, eða hittó :þ Komin upp í næstum því 800 kkal. og um 27,5 grömm kolvetni. Fór ekkert í ræktina þar sem ég fór bara í bíó í staðin. Held ég taki bara frí um helgina og fari í ræktina á mánudaginn. Núna ætla ég að hlamma mér í sófann og glápa á einhverja mynd, slappa bara af og hafa það næs.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home