Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

föstudagur, október 01, 2004

Hæ dúllur :D

Jájá, ég er hér. Orðin nokkurnvegin frísk aftur. Var á næturvakt í nótt (týpískt að vera veik alla frídagana og vera svo nógu hress til að mæta í vinnu aftur) og rútínan að komast í lag aftur. Helvítis vigtin heldur sig samt fast við að vera um og yfir 82,5 kg, skil hana bara ekki því ég hef ekkert verið að sukka. En svona er þetta, maður verður víst að sætta sig við þessa stæla í henni stundum. Hef ekkert farið að æfa þessa vikuna og nenni ekki í dag. Er nývöknuð og enn með smá kverkaskít. En ég ætla að drífa mig á morgun, er í fríi alla helgina ;)

Nenni ekki að skrifa máltíðir dagsins, enda fara þær allar úr skorðum þar sem ég svaf auðvitað í allan dag. En það verður ekkert óhollt, ég lofa ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home