Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

sunnudagur, október 03, 2004

Bakstur, bakstur, bakstur!

Tók upp á því að baka með krökkunum... eða reyndar bara með Örnu, því Elísa er orðin lasin og Hjalti var svo þreyttur að hann varð að leggja sig smá. En núna eru alveg ilmandi nýjar og heitar brauðbollur inni í eldhúsi og ég er í mestu vandræðum með að hemja mig. Er reyndar líka að hefa low carb brauðdeig, en það er langt þangað til það verður tilbúið. Ó hvað mig langar í heita og ilmandi brauðbollu með smjöri og osti. Púff, best að finna sér eitthvað sem ég má borða.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home