Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

laugardagur, október 16, 2004

Góðan daginn ;)

Þá er maður búinn að sofa. Er komin í leikfimigallann og búin að fá mér fyrstu máltíð dagsins, sem var Lindbergbrauð með áleggi. Ég legg nú ekki í það að rjúka beint í ræktina svona nývöknuð og úldin, en ég ætla að fara eftir svona hálftíma/klukkutíma. Bara jafna mig smá fyrst.

Annars er hér ein enn sem bloggar um átakið sitt. Hún reyndar hefur ekki sér átaksblogg, en skrifar samt um átkakið sitt á sér síðu á blogginu sínu. Eini gallinjn er að það er ekki hægt að kommenta beint undir því sem hún bloggar um átakið. En mér finnst endilega að við eigum að fylgjast með henni og kommenta þá bara í gestabókina, eða bara í dagbókina þó hún sé kannski ekki að skrifa akkurat um átakið þar. Kíkið á hana ;) Hún heitir Guðbjörg.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home