Dagurinn í gær
Ég gaf mér víst ekkert tíma til að skrifa í gær. Var að vinna til 15 og sótti svo ungana á leikskólann. Bjöggi þurfti að skreppa til Oslo að vesenast eitthvað í bílnum, vinur hans þekkir einhverja bílakalla þar sem aðstoðuðu hann. Eins gott að hafa bílinn í lagi þegar maður leggur af stað í langferð ;) En allavegana var ég bara voða þreytt í gær eftir vinnutörnina. Annars kallaði aðstoðardeildarstjórinn mig inn til sín í gær og var svo yndisleg að bjóða mér að vinna laugardaginn, þ.e. dagvakt, í staðin fyrir aðra næturvaktina mína og geyma bara hina þar til seinna. Þannig að ég slepp við næturvaktir um helgina :D Er voða ánægð því þá verð ég ekki grútsyfjuð þegar við leggjum af stað á sunnudaginn, og hef auk þess aðeins meiri tíma að undirbúa.
En já, matarlega séð var dagurinn í gær mjög fínn:
Morgunmatur: Egg og beikon.
Hádegismatur: Heimalöguð grænmetissúpa.
Miðdegisverður: Nautastrimlar með brokkolígratín og smá rjómasoðsósu.
Nart: 1 kolvetnasnauð kexkaka.
Kvöldsnarl: Cultura með jarðarberjum og smá strásætu.
Heildin gerði um 1180 kkal. og 30 grömm kolvetni. Er ánægð með það. Svo er ég að hugsa um að fara í leikfimi í dag, fór ekki í gær. En núna ætla ég bara að fara að malla mér egg og beikon í morgunmat :D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home