Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

sunnudagur, júní 13, 2004

Það var eins og ég hélt

Vigtin í dag sýndi mér 86,4. Mun raunhæfari tala en þessi 85,2 sem sást á laugardagsmorguninn ;) Ég er nú bara súperánægð með þetta, því það þýðir að bjórþambið á föstudaginn hefur ekkert skemmt fyrir mér. Auk þess er ég á blæðingum og ég er nú yfirleitt meira uppþembd þá. Önnur næturvakt bíður mín í nótt, en svo eru þær ekki fleiri í bili ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home