Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

mánudagur, júní 07, 2004

Það tekur á þolinmæðina

Ji hvað þetta getur verið erfitt. Var 87,0 kg í gær, sem ég kalla nú bara gott miðað við átið á laugardaginn. En svo var ég aftur 87,0 kg í dag sem ég er bara frekar svekkt yfir, þar sem mér fannst einhvernvegin eins og ég myndi vera léttari. En það þýðir svo sem ekkert að fárast yfir því. Það er bara svooooo þreytandi að vera föst í sömu tölu dag eftir dag, viku eftir viku *dragadjúptandann*. Ég ætla allavegana að drífa mig í leikfimi á eftir. Ég hugsa að ég taki Örnu og Hjalta með, þeim fannst þetta svo rosalega gaman síðast ;)

Og svo er bara að þamba Olludjúsinn góða :Þ

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home