Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

miðvikudagur, júní 02, 2004

Ég er ekki dauð ;)

Það er nú meira, maður bloggar ekki í einn dag og mér finnst bara ár og dagur síðan ég hef sett eitthvað hér niður á blað... meina tölvuskjá.

En já, ég er enn 87,1 kg, ótrúlegt hvað þessi vigt vill haldast þarna. En ég fór í leikfimi í dag, tók bara krakkana með mér, þ.e. Örnu og Hjalta, og leyfði þeim að vera í barnapössuninni á meðan. Það er svo frábær barnapössun þarna, fullt af dóti, vídeóherbergi og bara svaka gaman. En ég er nokkuð ánægð með daginn, fékk mér reyndar "Pytt i panne" í hádeginu, og það er slatti af kartöflum í því. En ég var sko í vinnunni og var ógeðslega svöng og fannst salatið eitthvað svo ógirnilegt þarna ni´ðri í matsal. Það verður bara að hafa það.

2 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home