Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

laugardagur, júní 12, 2004

Þynnkudagur

Jamm, ég bara fór á allsherjar fyllerí í gær. Drakk marga marga bjóra og borðaði meira að segja hálfa bakaða kartöflu með matnum. Fór á vigtina þegar ég vaknaði og sá þessa skemmtilegu tölu, 85,2, hahaha. En ég tek nú ekki rassgat mark á henni. Þjáist eflaust af vökvaskorti eftir þessa miklu áfengisdrykkju. En mikið er ég fegin núna að vera á kolvetnasnauðu fæði og geta því fengið mér djúsí egg og beikon. Ég er sko alveg að farast úr svona brasmatsþörf ;) Það voru bara ekki til egg á heimilinu svo Elísan mín skrapp út í búð fyrir mig og ég er bara að bíða eftir henni. Annars sit ég bara og þamba mitt TAB X-tra og reyni að leyfa líkamanum að endurheimta vökvann sem hann þarf ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home