Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

föstudagur, júní 11, 2004

Dugleg í dag

Vigtin helst enn undir 87 kg :D En dagurinn í dag gekk bara ótrúlega vel. Fékk mér egg og beikon í morgunmat áður en ég mætti á fyrirlestradaginn. Svo fékk ég mér bara vat og kaffi fram að hádegisverði, voru líka ávextir í boði en ég læt þá vera. Síðan var bara fínn hádegisverður, lax með léttsteiktu grænmeti, smjörsósu og kartöflum. Ég sleppti bara kartöflunum og var svo dugleg að standast eftirréttinn :D Stóðst meira að segja konfektið og sælgætið sem var boðið upp á um kaffileytið. Nú er ég að punta mig fyrir dinner og er reyndar að hugsa um að fá mér smá bjór, eða kannski hvítvínsglas bara, með honum. Allavegana ekki rauðvín, er búin að komast að því að það fer hrikalega illa í mig og þá er ég ekki að hugsa um þyngdina, heldur magann og hausinn ;) Skrifa kannski meira í kvöld ef ég kem ekki mjög seint heim :D

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home