Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

fimmtudagur, júní 10, 2004

Úbbasía

Það var svo sem týpískt. Alltaf þegar ég virðist vera á niðurleið geri ég eitthvað til að skemma það. Nú var svona sumarhátíð hjá bekknum hennar Elísu og það var grillað og boðið upp á kökur. Og ég þurfti endilega að fá mér af kökunum. Ég er bara ferlega fúl út í mig því ég ætlaði mér að standast þetta *andvarp*. Mér finnst ég sko bara langt frá því að vera dugleg, skemmi alltaf allan árangur hjá mér jafnóðum og búin að vera að jójóast svona í marga mánuði bara. Ég svo sem veit ekkert hvað vigtin segir á morgun, en býst alveg eins við því versta. Svo í þokkabót er fyrirlestradagur hjá okkur í vinnunni á morgun og þar verður boðið upp á hádegisverð. Ég er viss um að það verður eitthvað hlaðið kolvetnum, og þar sem við erum á hóteli þá get ég ekki tekið neitt með mér. Ég svelti þá bara.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home