Bara bjartsýn í dag
Gleymdi reyndar að vigta mig í morgun, en só vott sko. Ég er búin að standa mig mjög vel í dag, var að vinna, og kom svo heim og las öll yndislegu kommentin frá átaksgellunum mínum. var hrikalega sybbin reyndar því ég fór svo seint að sofa í gær, en lofaði Örnu og Hjalta að þau fengu að koma með mér í leikfimi og þá var engrar undankomu auðið. Þeim finnst svo gaman að fara í gæsluna í líkamsræktarstöðinni, enda frábær aðstaðan þar. Þannig að ég druslaðist í leikfimi og púlaði alveg svakalega og er bara alveg endurnærð og hress núna. Ég finn að ég er komin í betra form, get farið miklu hraðar á Orbitrekkinu og er samt með lægri púls en ég var fyrst þegar ég byrjaði. Eins er ég aðeins farin að bæta við þyngdum í sum tækin í prógramminu mínu ;)
En með þyngdina já, það er svo satt sem ég las á síðunni hjá 75 kg að maður á ekkert að vera að hengja sig upp í þessum 300 grömmum sem koma og fara daglega. En ég verð nú samt að viðurkenna að mig langar aldrei, aldrei, aldrei að sjá þessa ljótu 87 tölu aftur að morgni til, hahaha.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home