Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

þriðjudagur, júní 08, 2004

Happy happy joy joy!

Bara pang púff, allt í einu í morgun þá var bara þyngdin 86,3 kg og mín ekkert smá sæl með þetta :D Vona bara og vona og vona og vona að ég verði ekki aftur 87 *grrr* á morgun. Er búin að standa mig bara vel í dag, var á kvöldvakt svo ég fór ekkert í leikfimi. En ég fór náttúrulega í gær og svo ætla ég að reyna að komast á morgun. Mér finnst ég meira að segja vera grennri, sérstaklega í mittinu og á maganum, hahaha. Fyndið hvernig maður er ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home