Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

föstudagur, júní 25, 2004

Komin aftur

Jæja, ég fékk bara ofnæmistöflu og beið svo og beið eftir að fá að hitta lækni. Þegar meira en klukkutími var liðinn leyfði hjúkkan mér að fara heim, því taflan var greinilega farin að virka, útbrotin að dofna og ég ekkert að versna. Er enn svolítið dofin í vörunum, en samt skárri. Fékk bara aðra töflu með mér heim til að taka á morgun. Svo hef ég auðvitað samband ef ég fer eitthvað að versna aftur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home