Kvöldtjattið ;)
Ég fékk mér smá kolvetnasnautt súkkulaði áðan, svo nýjar tölur fyrir daginn eru ca 1300 kkal. og 35 grömm kolvetni. Mig dauðlangar í eitthvað meira nart núna, en ég ætla að standast það og drekka bara Tabið mitt. Klukkan er orðin það margt að ég lifi þetta alveg af ;) Er að spá í að prófa jafnvel soyapönnukökurnar hennar Gerrit á morgun. Kannski bara sniðugt að hafa svoleiðis í morgunmat, smá tilbreyting, og fylla með steiktu beikoni, fersku grænmeti og smá dressing eða AB-mjólkursósu. Svona crêpes :D Mér finnst þær líka svo rosalega góðar. Síðan er auðvitað tilvalinn eftirréttur að hafa svona pönnukökur með kolvetnasnauða ísnum mínum ;) Ég setti inn pönnuköku-uppskriftina í uppskriftirnar mínar, bæði undir smáréttir og eftirréttir.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home