Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

mánudagur, júní 21, 2004

Meira blaður

Gleymdi að segja ykku að ég fór og keypti soyamjöl áðan. Vona að það sé sama og þetta soyahveiti. Hér heitir þetta bara soyamel. Hveiti er líka mel. Þarf svo að prófa pönnsurnar hennar Gerrit við tækifæri.

Annað sem ég er að velta fyrir mér. Þetta kvöldnart hjá mér er langoftast bara einhver vani held ég, ég er oftast ekkert svöng. Bara einhver fíkn að hafa eitthvað til að narta í á kvöldin. Ég stóð mig að því að hugsa um hvort ég ætti að fá mér eina brauðsneið af Lindbergbrauðinu mínu, en við smá nánari umhugsun þá fann ég að sjálfsögðu að ég er enn pakksödd eftir matinn áðan. Held ég þurfi að fara að hlusta meira á líkamann svona á kvöldin... ég er ekkert svöng!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home