Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

fimmtudagur, júní 17, 2004

Hæ stelpur!

Alltaf smá þörf hjá mér að tjá mig fyrir svefninn ;) Var á kvöldvakt og gekk mjög vel með mitt mataræði. Búin að fara bloggrúntinn og búin að bæta við einum link ;) Annars hef ég heyrt frá fleiri en einni að þetta Bloggerkommentakerfi sé mjög óhentugt. Þær eru nefninlega nokkrar sem eru ekki skráðar hjá Blogger og hafa það ekki í hyggju, og þær geta bara ekkert kommentað þó þær dauðlangi til. Hafið það í huga þið sem eruð með Blogger-kommentin.

Annars er það orðið opinbert að ég kem til Íslands 30. júlí ásamt familíunni og fer aftur til Noregs 21. ágúst :D

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home