Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

þriðjudagur, júní 15, 2004

Smá kvöldtjatt ;)

Var að koma heim af kvöldvakt, hjólaði í vinnuna í dag í skínandi góðu veðri og hjólaði heim í grenjandi rigningu og roki :S Annars er ég bara að tjá mig hvað ég er ánægð með mig og hvað ég finn að ég er að grennast. Núna er ég farin að taka eftir að viðbeinin eru orðin miklu meira merkjanleg, ekki falin í einhverju mjúki spiki. Þegar ég strýk niður við hliðina á hálsinum á mér finn ég vel fyrir þeim :D Mér er eiginlega alveg sama hvað vigtin segir á morgun, svo lengi sem hún verður ekki 87, hahaha. Nja, nú langar mig bara að hún haldist undir 86, svo mér er ekki alveg sama. En ég veit alveg að hún getur hoppað svolítið og skoppað, svo hún gæti alveg verið yfir 86 á morgun. Hlakka samt til að sjá hvað verður ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home