Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

þriðjudagur, júní 15, 2004

Góð byrjun á deginum

Samkvæmt vigtinni er ég komin undir 86 kg :D Ég var 85,4 kg í morgun JÍÍÍÍÍHAAAAAAA!!!! Svo fékk ég orlofið mitt og yfirvinnuna og á fullt af pening og er að fara að versla miðana til Íslands á eftir ;) Veðrið lofar líka góðu og eina sem skyggir á er að ég verð víst að fara á kvöldvakt og get ekki eytt deginum í leti. Ég nenni ekki í leikfimi, ætla bara að vera löt. Ég gat ekkert sofnað fyrr en um hálffimm í nótt og er bara grútsyfjuð. Ætla í stað þess að púla að leggja mig bara í sófanum áður en ég fer að vinna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home