Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

föstudagur, júní 18, 2004

Feit í dag

Eigið þið ekki svona daga þar sem ykkur finnst þið vera svakalega feitar, og svo aðra þar sem ykkur finnst þið vera að grennast og líður voða vel? Allavegana er það svona hjá mér og í dag er ég feit. Mér er bara búið að finnast ég uppþembd í allan dag. Samt hef ég ekkert svindlað, en eitthvað er það sem fær mig til að finnast ég vera voða feit. Líður eins og ég verði örugglega 86 kg á morgun, ef ekki meira. Skil ekki afhverju.

Ég fór nú samt í Lindex og H&M og keypti mér föt. Keypti dökkar gallabuxur, ferlega flottar, í stærð 44. Svolítið þröngar í mittið, en passa annars svaka flott. Síðan keypti ég mér smart blússu, bláröndótta, líka í stærð 44. Svo loksins keypti ég mér almennilegan brjóstahaldara, í stærð 85-C ;) Svo nú er ég svaka gell, nema bara að ég er feit í dag :Þ

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home