Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

sunnudagur, júní 20, 2004

Smá meira plan

Er að hugsa um að vera mjög samviskusöm núna að reikna út kolvetnainnihaldið í matnum sem ég borða. Í dag reiknast mér til að ég sé búin að láta ofan í mig um 31 gramm af kolvetnum og hitaeiningafjöldinn er samtals ca 1460 kkal. Ég held að það sé mjög temmilegt. Ég er alveg pakksödd enn eftir kvöldmatinn.

En ég komst ekki í neinn göngutúr. Grey kallinn minn er enn svo hrikalega slappur og krakkaóþekktarormarnir ekki sofnaðir, svo ég kemst ekkert út :S Verð að drífa mig í leikfimi á morgun.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home