Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

þriðjudagur, júní 22, 2004

Djöfull og helvíti!!!!

Nei, ég var ekkert að klikka á átakinu mínu, búið að ganga mjög vel í dag líka. Skrifa meira um það á eftir. En helvítis Blogger er eitthvað að stríða mér. Ég ætlaði að bæta inn fleiri linkum og þá bara vantar stærstan hlutann af templatinu mínu!!! Skil bara ekkert hvernig það getur hafa horfið. Ég lagaði einn link í dag og seivaði breytingarnar og republishaði, og síðan hef ég ekki gert neitt meir. Þannig að ég er handviss um að ég hef ekki strokað templatið út fyrir einhver mistök. Síðan sjálf er ok þar sem það er ekkert búið að rebublisha þetta drasl sem eftir er af templatinu, en ég get ekki bætt inn neinum linkum nema að þurfa að gera alla síðuna upp á nýtt. GAAAAAAAAAAAAAARRRRRGGGG!!!!!!!! Ég er búin að skrifa Blogger og spyrja þá út í þetta og hvort það sé hægt að redda þessu einhvernvegin. Oh, vonandi! Ég bara nenni ekki að fara að gera allt upp á nýtt, buhuhuhu! Ég hélt að ég hefði seivað templatið hjá mér í Word, en ég get ekki fundið það. Enn meira GARG!!! Ég nefninlega er alltaf vön að seiva þessi template reglulega.

En hér er allavegana linkur á eina átaksgelluna í viðbót: solo

Kannski einhver ykkar linki á hana svo ég geti auðveldlega fundið hana aftur þegar ég get lagað templatið mitt.

Jæja, urr, ætla að fara að elda miðdegisverð.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home