Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

fimmtudagur, janúar 27, 2005

Var á næturvakt

Já, er nývöknuð, var á næturvakt s.l. nótt. Fer aftur í nótt og svo um helgina. Slepp reyndar við aðfaranótt laugardagsins þar sem ég vann hana í raun í nótt (skipti við eina sem þurfti að fá frí). Nenni þess vegna ekki að skrifa inn mataræðið, en það var svo sem ekkert svindl, borðaði bara svolítið mikið ;) Vigtin var samt nokkuð góð við mig áðan, en ég set ekki inn tölu fyrr en á sunnudaginn. Kannski verður vigtin ekkert góð við mig þá, hahaha.

Hef annars lítið að segja. Bjóst ekki við að fara á næturvakt í nótt aftur svo ég veit ekki hvort ég kemst yfir bloggrúntinn, en ég reyni ;) Ég var nefninlega plötuð til að taka aukavakt. Já já, það er alltaf gott að fá smá aukapening ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home