Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

laugardagur, október 30, 2004

Kjólaleit

Já mig langar svo hrikalega í nýjan kjól fyrir jólaborðið á föstudaginn. Fór áðan og leitaði og leitaði og fann bara engan sem mér leist nógu vel á. Reyndar er ekki jólakjólaúrvalið almennilega komið í búðirnar. Ég vona að það komi einhverjar vörur í næstu viku. Sá reyndar einn sem mér fannst mjög flottur í sniðinu, en ég er ekki viss með litinn. Hann er nefninlega svolítið bleikur og ég bara veit ekki hvernig það fer mér. Þarf að fá einhvern til að skoða hann með mér. Svo fann ég annan sem var rosa elegant, vínrauður og svaka flottur. Smellpassaði... nema var of þröngur yfir brjóstin *urr*.

En já í gær. Ég var svo södd eftir ísinn að ég fékk mér aldrei grænmetissnakkið. Eins fékk ég mér bara einn BabyBel ost, ekki tvo. Svo í gær urðu kaloríurnar ekki fleiri en um 990 kkal. og kolvetnagrömmin 33. Kem með matseðil dagsins í dag á eftir. Ætla svo að reyna að fara í ræktina seinna í dag.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home