Vigtunardagur og pælingar
Jámm, er sko alveg sátt við töluna sem ég sá á vigtinni núna, 71 kg ;) Þetta fer sem sagt allt í rétta átt og það þó ég sé búin að slaka aðeins á í mataræðinu. Bara gaman.
Annars var ég að heyra nýjar niðurstöður í sambandi við BMI, man ekki einu sinni hvar. Held að ég hafi lesið þetta í einhverju dagblaðinu hér. En allavegana þá virðist núna ýmislegt benda til að það sé strax aukin hætta á hjartasjúkdómum o.fl. þegar maður er kominn yfir 23 í BMI :S. Ég er náttúrulega búin að vera að hugsa um hvert lokatakmark mitt ætti að vera, langaði að komast undir 70 kg. En svona í kjölfar þessara upplýsinga þá held ég að ég stefni bara á BMI 23 og þá þarf ég að komast í 66-67 kg. Kannski ég setji þá bara markmiðið 66,5 kg, þá er BMI akkurat 23 ;) Ég reyndar veit ekki hversu mikil þessi aukna áhætta er þegar maður er með BMI á milli 23 og 25, varla mjög mikil, en þetta er bara ágæt leið fyrir mig að finna mitt lokamarkmið.
Annars er ég að fara í barnaafmæli og er búin að ákveða að hafa bara smá nammidag í dag og leyfa mér eina væna kökusneið. Svo ætla ég að leyfa mér eitt snikkerssúkkulaði í kvöld, hrikalega langt síðan ég leyfði mér eitthvað svoleiðis ;)
Njótið dagsins stelpur ;D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home