Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

laugardagur, febrúar 05, 2005

Sumarfríspælingar

Já, svei mér þá. Ég þarf að fara að huga að því hvenær ég vil taka sumarfrí. En nú erum við hjónin að velta fyrir okkur að fara kannski bara eitthvert til sólarlanda í sumar. En þá vandast málin því ég hef bara aldrei farið til sólarlanda. Kallinn hefur bara einu sinni farið til Kanarí og var þá ungur og laus og liðugur og var auðvitað bara að djamma ;) Þannig að við erum að vandræðast með hvert sé best að fara sem fjölskylda með þrjú börn, 10, 5 og 3 ára. Ég er líka enginn sólardýrkandi, þ.e. ég nenni ekki að fara í þeim tilgangi að liggja í sólbaði allan liðlangann daginn. Mig langar að fara eitthvert þar sem er hægt að skoða einhverja áhugaverða staði, fallega staði, gera eitthvað skemmtilegt o.s.frv. Viljið nú hjálpa mér elsku vinkonur og koma með einhverjar uppástungur og hugmyndir, því ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja á að skoða.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home