Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

sunnudagur, janúar 30, 2005

Nammidagur í gær

Já, svei bara. Fékk mér pylsu í brauði, ís, skúffuköku og súkkulaði. Enda var vigtin eftir því í morgun. Var búin að sjá tölu upp á 71,1 í gær, en áðan var hún 71,9. Ekki mikið við því að gera ;) Er svo sem ekkert að stressa mig yfir þessu, fannst í raun bara voða næs að fá mér þetta góðgæti, en ætla mér nú ekki að fara að éta svona daglega ;)

Ætla að reyna að druslast í ræktina á eftir. Svo er síðasta næturvaktin í nótt svo að á morgun fer ég að skrifa inn matseðilinn aftur ;) Hef vonandi tíma til að fara bloggrúnt á eftir.

Takk fyrir hrósið og sætu kommentin. Ég veit að ég er að farast úr monti þessa dagana, hehehe, en ég hlýt að mega það hér á átakssíðunni minni ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home