Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Fúlt!

Já, það er sko hundfúlt að fá á sig einhverjar ásakanir og skítkast sem maður á ekkert skilið. Ég kommentaði á síðuna hans Valla og kom með eina ábendingu og honum tókst að mistúlka þetta svona herfilega, ásamt því sem hann fór að ásaka mig fyrir hluti sem ég hef ekki komið nálægt og aldrei gert. Getið lesið þetta "fallega" komment hans hér fyrir neðan. Vissulega er þetta örugglega einhver misskilningur, en hann sér allavegana ekki ástæðu til að biðjast mig afsökunar. Sem ég túlka sem svo að honum finnist hann greinilega hafa rétt fyrri sér og flokki mig í einhvern flokk kvenna sem eru að reyna að gera honum lífið leitt. Ekki skil ég hvernig hann fær þetta út. En allavegana er ljóst að ég mun ekki voga mér að kommenta meira á síðuna hans, það verður örugglega allt mistúlkað sem ég segi þar og litið á vinsamleg ráð og hugmyndir sem einhverjar árásir. Mér finnst það eiginlega mjög leiðinlegt, því mér fannst svo skemmtilegt að fá karlmann í hópinn. En svona fór nú það. Ég bara nenni ekki sleikja fólk upp og tipla á tánum með allt sem ég segi. Ekki hef ég lagt í vana minn að vera ókurteis og ekki ætla ég að fara að vera það, en ég vil geta komið með ráð og ábendingar án þess að það sé tekið illa upp og snúið upp í andstæðu sína. Og mig langar svo sannarlega ekki að fá á mig svona óhróður og skítkast aftur. Vona bara að Valla gangi vel í sínu átaki og öllum hinum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home