Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

fimmtudagur, september 29, 2005

Long time no see!

Já það má svo sannarlega segja það. Hef verið ofsalega ódugleg við bloggið undanfarið, þ.e. hef bara ekki bloggað neitt í nokkra mánuði held ég bara. En nú er kominn tími á að breyta því.

Ég er svo sannarlega ekki búin að vera dugleg í mataræðinu undanfarið og það finnst líka á fötunum og sést á vigtinni. Hún er komin hættulega nálægt 80 kílóunum og nú bara verð ég að gera eitthvað áður en allt fer virkilega til fjandans. Ég ætla nefninlega aldrei að verða feit aftur.

Ég var nokkuð dugleg í ræktinni í september, keypti mér kort í Laugum og líkaði mjög vel. Svo fyrirfórst einhvernvegin að kaupa kort aftur í september, en núna er alveg að koma að útborgunardegi og ég ætla að kaupa mér kort þarna aftur og fara að drífa mig af stað, ég bara verð. Finnst virkilega óþægilegt að komast ekki að æfa.

En allavegana, stefnan er tekin á að losa mig við 10 kg í þessari lotu. Ætla að skipta þessu í tvennt, þ.e. fyrst 5 og svo önnur 5. Þannig að núna byrja ég á þessum 5. Reyndar ætla ég að byrja formlega akkurat um mánaðarmótin og þá mun verða opinber vigtun (hjálp), en þangað til ætla ég bara að reyna að finna gírinn minn aftur í mataræðinu, trappa niður óhollustuna o.s.frv.

Úff, hvað ég verð að kíkja bloggrúnt, allt of langt síðan síðast ;)