Verð bráðum grönn aftur ;)


Var mest um 117 kg (janúar 2003), en en náði mér á tveimur árum í 68 kg. Bætti því miður aftur á mig slatta og er nú að ná þeim af aftur.
Meira um átakið mitt

föstudagur, september 30, 2005

Þið eruð yndislegar

Vá hvað þið eruð æðislegar. Ég var svo hrædd um að ég væri dottin út úr öllu og enginn myndi eftir mér, hehe, en því er nú greinilega öðru nær.

Enn er ég ekki komin almennilega af stað, en morgundagurinn er enn planlagður sem fyrsti dagurinn í þessari átakshrinu. Gott að vera byrjuð að skrifa aftur, heldur manni svo miklu betur við efnið.

Annars er ég að fara á næturvaktir um helgina, býst alveg við að það verði mikið að gera. Er að vinna á slysó og það er nú sjaldan lognmolla þar, sérstaklega ekki um helgar. Þannig að þið fyrirgefið mér ef ég skrifa ekki mikið um helgina og fari ekki alltaf bloggrúntinn. En ég ætla nú að reyna að skrifa smá samt.

Jæja, nóg að gera hjá mér í dag, sjáumst ;)